Colour me by Milton Lloyd

Milton Lloyd var stofnað árið 1975 og er breskt fjölskyldufyrirtæki með höfuðstöðvar í London. Með ástríðu að vopni hefur þessi samrýmda fjölskylda byggt upp lúxusvöru á viðráðanlegu verði.
Milton-Lloyd selur yfir 18 milljónir af ilmvatnsflöskum á hverju ári um allan heim og nær þannig að halda kostnaði niðri en gæðum uppi. Milton Lloyd auglýsa eiginlega ekkert en framleiða mikið af prufum og hafa þannig náð þessum árangri. Colour Me línan er þar langvinsælasta línan þeirra. Ilmvötnin hafa notið gífurlegra vinsælda og er herra ilmurinn Victor mest selda ilmvatnið á Amazon. Vegan og Cruelty Free

Dömuilmir

Colour Me – Pop Art Femme

Nátturlegur, ferskur blómailmur.
Líflegir topptónar af sólberjum, perum og írisarblómi, ásamt kvenlegu jasmínarhjarta. Grunntónarnir eru ríkuleg blanda af viðarkenndri sælkerablöndu og vanillu.

100ml

Colour Me – Pink Femme

Hlýr og rómantískur ilmur. Sætur en fágaður kvenilmur, Colour Me Pink gleður lyktarskynið með blöndu af geranium, liljum og rósum á vanillubotni. Rómantískt, hlýtt og seiðandi – hið fullkomna ilmvatn fyrir konur.

100ml

 

Colour Me – Neon Pink Femme

Glitrandi og tælandi ilmur. Þetta líflega ilmvatn fyrir konur skilgreinir sumarstemningu með grænni mandarínu, engifer og vatnajasmín. Colour Me Neon Pink er glitrandi, orkumikið og eldheitt, sem gerir það að fullkomna ilmvatni fyrir konur sem vilja bæta sjálfstraust við stílinn sinn.

100ml

Colour Me – Purple Femme

Elegant og ríkulegur ilmur. Þessi fíni ávaxtailmur sameinar glæsileika og lúxus með nútímalegum hráefnum til að búa til klassískt ilmvatn fyrir konur. Fíngerð blómablanda er vandlega fléttuð milli laga af bergamot og vatnsmelónu, eikarmosa og amber.

100ml

Colour Me – Gold Femme

Ríkur og þokkafullur ilmur. Glæsilegt ilmvatn fyrir konur með ferskum topptónum – ásamt því að vera stílhreint, mjúkt og seiðandi.
Ilmur fyrir þessa fullkomnu kvenlegu tilfinningu.

100ml

Perfumer´s Choice – Valerie

Þokkafull, fáguð og kvenleg. Djörf blanda af sólberjum, appelsínu og kaffi – þessi kvenilmur veitir ánægju samstundis. №8 Valerie er þokkafullt og fágað og langvarandi ilmvatn fyrir konur.

83ml

Herrailmir

Colour Me – Abstract Art Homme

Ferskur, kryddaður og karlmannlegur ilmur. Colour Me Abstract Art er hressandi herralilmur sem blandar ferskum, arómatískum keim með ríkum karllægum viðargrunni.

100ml

Colour Me – Black Homme

Ferskur, seiðandi og endurnærandi ilmur. Vertu besta útgáfan af sjálfum þér með Colour Me Black, hressandi ilm sem hannaður er fyrir karlmenn. Bergamot og vatnsávöxtum er blandað saman við geranium og vanillu og úr verður guðdómlegt ilmvatn fyrir karlmenn.

100ml

Colour Me – Gold Homme

Kryddaður, arómatískur og karlmannlegur ilmur.
Sérstaklega ríkur ilmur fyrir karla – Colour Me Gold sameinar ávaxtaríka topptóna með arómatískum jurtum og skapar yndislega upplifun. Langvarandi en léttur herrailmur – hentar við öll tækifæri.

100ml

Colour Me – White Homme

Hlýr og karlmannlegur ilmur. Colour Me White er ferskur, nútímalegur og hressandi herrailmur. Þetta lúxus ilmvatn fyrir karlmenn blandar saman ananas og appelsínu með leðri, sedrusviði og vanillu fyrir langvarandi ilm.

100ml

Colour Me – Volt Homme

Arómatískur og einstakur ilmur. Bættu neista við stílinn þinn með hjálp Colour Me Volt, rafmögnuðum herrailm sem blandar saman sítrus, pipar og Ambroxan. Colour Me Volt er djarfur ilmur fyrir karlmenn.

100ml

Perfumer´s Choice – Victor

Ferskur, þokkafullur og karlmannlegur ilmur. Einstakur karlmannsilmur, №9 Victor er vandlega hannaður af sérfróðum ilmvatnsframleiðendum. Endurnærandi keimur af eplum, bergamot og ananas – þetta ilmvatn fyrir herra er frískandi, seiðandi og arómatískt.

83ml

Sölustaðir

Beautybox
Snyrtivöruverslun og netverslun

www.beautybox.is

Síðumúli 22
108 Reykjavík
Ísland

BEautybar
Hárgreiðslustofa og verslun

www.beautbar.is

Kringlan
103 Reykjavík
Ísland