raybae

RayBae er lúxuslína af hreinum og náttúrulegum húðvörum. Móðir náttúra sameinar krafta sína fremstu vísindum og úr verða áhrifaríkar og öruggar húðvörur sem þú getur treyst. RayBae leggur mikla áherslu á umhverfisvænar umbúðir og pakkningar – og allar vörurnar eru framleiddar með lágmarkskolefnislosun, með því markmiði að minnka kolefnissporið.

Vörurnar

Vitamin C Rosehip Cleanser

Fáðu náttúrulega ljómandi húð og komdu í veg fyrir algeng merki öldrunar með þessari dásamlegu formúlu sem er stúfull af andoxunarefnum og stuðlar að jafnvægi í húðinni. A, C og E vítamínin hjálpa til við að verja húðina gegn sindurefnum sem valda fínum línum, hrukkum og dökkum blettum – ásamt fleiri öldrunareinkennnum. Einstök formúla sem kemur jafvægi á húðina og nærir hana vel, þannig að hún fær heilbrigt og ljómandi útlit.

120ml og 45ml

 

Age Defying Miracle Wrinkle Serum

Lúxusformúla sem lyftir, þéttir og birtir yfirborð húðarinnar. Serumið inniheldur peptíð sem vinna gegn öldrunareinkennum og níasínamíð (B3) sem dregur úr fínum línum og hrukkum, minnkar svitaholur og birtir líflausan húðtón.
Serumið er hlaðið náttúrulegum hráefnum eins og lakkrís, grænu tei og kamillu sem auka ljóma húðarinnar, berjast gegn dökkum blettum og hjálpa til við að róa húðina, ásamt því að vernda hana gegn umhverfisáhrifum.
Kraftmikil formúla sem gefur húðinni samstundis unglegt, ferskt og ljómandi útlit.

30ml og 15ml 

Rejuvenating Retinol Serum

Alhliða rakagefandi formúla sem er stútfull af A, C og E-vítamínum, sannkölluð andoxunarefnabomba. Retinol serumið er sérstaklega hannað til að vernda húðina gegn sindurefnum, draga úr einkennum öldrunar og takast á við stíflaða húð.
Öflug, ný tegund af A-vítamíni (hýdroxýpínakólonretínóat) stuðlar að heildarheilbrigði húðarinnar og tærleika. Umbreytandi serum sem er stútfullt af húðelskandi innihaldsefnum sem veita tæra og geislandi unga húð.

15ml

 

Skin Brightening Vitamin C Serum

Ofuröflugt 12% C-vítamín serum sem gefur húðinni samstundis bjartara yfirbragð, dregur úr litabreytingum og hjálpar til við að bæta heildaráferð húðar og yfirbragð. Frábær og mild formúla sem verndar húðina fyrir streituvaldandi umhverfi sem sýnir sig í bjartari, unglegri og ljómandi húð.

15ml

Ultra-Hydrating Deep Water Day Cream

Endurheimtu náttúruleg næringargildi húðarinnar. Rakakremið er stútfullt af næringarefnum úr sjónum. Kremið inniheldur formúlurnar Homeo-soothe™ og Homeo-shield™ sem eru unnar eru úr brúnu þangi og þörungum. Kremið aðstoðar húðvörnina, róar húðina, veitir framúrskarandi raka og verndar hana gegn umhverfisáhrifum.

60ml og 30ml

Ultra-Hydrating Deep Water Night Cream

Rakaríkt næturkrem sem inniheldur hýalúrónsýru og glýserín, sem læsa raka djúpt í húðinni og verja hana gegn rakatapi á meðan þú sefur. Algjör rakabomba sem nærir húðina með vítamínum, steinefnum og náttúrulegum, næringarríkum brúnþörungum.

60ml og 30ml

Overnight Collagen Mask

Einstakur kollagen næturmaski sem sameinar krafta vatnsrofiðs kollagens og peptíða ásamt rakagefandi innihaldsefnum – sem veita húðinni allt sem hún þarf til að blómstra á meðan þú sefur.
 
Maskinn hjálpar til við að auka alhliða þéttleika húðarinnar, teygjanleika og berst gegn litabreytingum. Stútfullur af peptíðum sem vinna saman að því að slétta fínar línur og hrukkur ásamt því að styðja við kollagen og elastín í húðinni.
60ml og 30ml

sölustaðir

beautybox
snyrtivöru og netverslun

www.beautybox.is

Síðumúli 22
108 Reykjavík
Ísland

Beautybar
Hárgreiðslustofa og verslun

www.beautbar.is

Kringlan
103 Reykjavík
Ísland