Stylpro

Stofnandi StylPro, Tom Pellereau, stóð uppi sem sigurvegari þáttanna The Apprentice árið 2011 – og landaði í kjölfarið fjárfestingu upp á 250.000 pund til að láta draum sinn rætast. StylPro er með það að markmiði að leysa hausverkinn sem getur fylgt förðunarvörum – á fljótlegan og árangursríkan hátt. Slagorðið “We make beauty, make sense” lýsir vel hugarfarinu sem StylPro hefur að leiðarljósi. 

 

LED-ljósavörur

StylPro – Fabulous Firmer Neck and Face Smoother

STYLPRO Fabulous Firmer er handhægt LED ljósameðferðartæki sem hjálpar til við að endurnýja húðina á andliti og hálsi.

Uppfærðu húðumhirðu rútínuna þína með STYLPRO Fabulous Firmer, sem færir nýstárlega tækni snyrtirmeðferða beint heim til þín.

Með því að nota blöndu af hita, nuddi og litaljóstækni hjálpar nýja uppáhalds fegurðargræjan þín að koma í veg fyrir og draga úr hrukkum, aldursblettum, unglingabólum og ójafnri húð.

Með þremur stillingum sem bjóða upp á græna, rauða og bláa ljósmeðferð, dregur STYLPRO Fabulous Firmer úr útliti aldursbletta og annarra litarefna í húð, kemur í veg fyrir uppsöfnun olíu til að draga úr unglingabólum og fílapenslum og örvar framleiðslu kollagens til að auka stinnleika og mýkt húðarinnar.

StylPro – Bags Be Gone Eye Massager

STYLPRO Bags Be Gone Eye Massager notar 3 mismunandi stillingar. Allar 3 stillingarnar nota hita til að hjálpa til við að opna kirtla fyrir ofan og neðan augað, dregur úr kláða, roða og þyngsli.
Mode 3 bætir við titringsnudd eiginleikanum, sem stuðlar að auknu sogæðarennsli með því að hjálpa til við að auka blóðrásina. Fyrir vikið eru lokin á efri og neðri augum sýnilega minna rauð og bólgin.
Mode 2 bætir við LED rauðljósa eiginleikanum, sem hvetur til endurnýjunar bæði kollagens og elastíns, tveggja náttúrulegra próteina sem stuðla að sléttara og unglegra útliti á húðinni.
Mode 1 notar báða viðbótareiginleikana, hvetur til allra ávinninga hitameðferðar, titringsnudds og LED rauðljósameðferðar.

StylPro – Red Light Spectacles

Rauð LED ljósameðferð hjálpar til við að auka kollagenframleiðslu húðarinnar, en EMS miðar á vöðvana í kringum augun til að draga úr fínum línum og hrukkum, þétta húðina og getur ýtt undir betra sogæðarennsli. STYLPRO Spec-tacular EMS og Red Light Therapy gleraugun eru með 3 styrkleikastillingar og 2 titringsstillingar og létt hönnun þeirra gera þau mjög þægileg.

StylPro – High-Intesity Red LED Facial Tool

Handhægt ljósmeðferðartæki fyrir andlit sem gefur frá sér rautt og nærinnrautt ljós til þess að auka kollagenframleiðslu húðarinnar og gera hana endurnærða og geislandi.

 

StylPro – Red Light Goggles

Dragðu úr broshrukkum, hrukkum, fínum línum og dökkum baugum og bláma í kringum augun með STYLPRO Radiant Eyes Red Light Therapy gleraugnum. Þessi handfrjálsa lausn er hönnuð til að hjálpa til við að slétta, stinna og þétta húðina með því að nota endurnýjandi rauða LED ljósameðferðartækni sem rannsóknir hafa sýnt að eykur náttúrulega kollagenframleiðslu djúpt undir húðinni.

Ísskápar & Snyrtivöruhirslur

Stylpro – Beauty Ísskápur

Snyrtivöru ísskápur sem passar að vörurnar þínar og þá sérstaklega að lífrænar vörur endast lengur og haldist ferskar.

Með því að geyma snyrtivörur í ísskáp haldast innihaldsefnin ferskari og getur það minnkað hættuna á því að bakteríur nái að þrífast í þeim.

Kaldar snyrtivörur hjálpa líka við að róa húðina, minnka sjáanlegar húðholur og hjálpa við þrota í húðinni.

Ísskápurinn er einnig sniðugur til þess að geyma lyf og drykki.

  • Ísskápurinn tekur 4 lítra og er fallegur og látlaus.
  • Inniheldur hita og kuldastyllingu. Ísskápurinn kælir niður í 2° en þó mest 20° undir herbergishita og hitar upp í 45-50°ef hitastilling er notuð.
  • Ískápurinn er 190*170*275 cm stór og er innanmálið hans 135*140*200 cm eða 4 lítrar.

Ath vörurnar á myndinni fylgja ekki með

StylPro – Beauty Ísskápur Svartur

Svartur snyrtivöru ísskápur sem passar að vörurnar þínar og þá sérstaklega að lífrænar vörur endast lengur og haldist ferskar. Með því að geyma snyrtivörur í ísskáp haldast innihaldsefnin ferskari og getur það minnkað hættuna á því að bakteríur nái að þrífast í þeim.Kaldar snyrtivörur hjálpa líka við að róa húðina, minnka sjáanlegar húðholur og hjálpa við þrota í húðinni. Ísskápurinn er einnig sniðugur til þess að geyma lyf.

StylPro – Stylpro Beauty Storage Unit Pod

STYLPRO Beauty Storage Pod er fullkomin lausn fyrir til að geyma og skipuleggja snyrtivörurnar þínar. Þessi örugga og stílhreina hirsla er hönnuð með fjórum mismunandi stórum geymsluhólfum, sem gerir hana fullkomna til að skipuleggja snyrtivörur, förðununarvörur, fylgihluti og fleira í ýmsum stærðum!

StylPro – Stylpro Beauty Storage Unit Podlette

STYLPRO Beauty Storage Pod er fullkomin lausn fyrir til að geyma og skipuleggja snyrtivörurnar þínar. Þessi örugga og stílhreina hirsla er hönnuð með fjórum mismunandi stórum geymsluhólfum, sem gerir hana fullkomna til að skipuleggja snyrtivörur, förðununarvörur, fylgihluti og fleira í ýmsum stærðum!

Speglar

StylPro – Melody Mirror

STYLPRO Melody spegillinn er fullkominn snyrtibúnaður sem sameinar stíl og virkni í einu. Með mismunandi ljósastillingum geturðu málað þig með fullkominni lýsingu. Spegillinn er einnig með Bluetooth tengingu þannnig að þú getur tengt símann þinn og hlustað á tónlist gegnum spegilinn.

StylPro – Glow & Go Mirror

StylPro Glow & Go ferðaspegill er með stillanlegu ljósi, 10x stækkunarspegli sem hægt er að festa á hann, 3 halla stillingum og ferðahulstri.

Spegillinn er fallegur og fyrirferðarlítill og auðveldur að ferðast með.

Batteríið endist í allt að 2 tíma en spegillinn er svo hlaðinn með UBS hleðslutæki. Vinsamlega athugið að það þarf að kveikja á speglinum þegar hann er hlaðinn annars hleðst hann ekki.

StylPro – Twirl Me Up

Við kynnum STYLPRO Twirl Me up spegilinn – algjört must-have fyrir alla sem elska að hafa lúkkið í lagi, jafnvel á ferðinni. Þessi létti og netti handspegill er hannaður til að auðvelda þér lífið.

StylPro – Flip’n’Charge

STYLPRO Flip ‘n’ Charge er fullkominn aukabúnaður fyrir allar þínar snyrtiþarfir! Þessi slétti spegill veitir þér ekki aðeins fullkomna lýsingu með björtu LED-hringljósinu, heldur virkar hann einnig sem símahleðslutæki, sem gerir hann að ómissandi félaga hvert sem þú ferð.

Aðrar Vörur

StylPro – StylPro 4 in1 Spa Facial Steamer

StylPro 4 in1 Spa Facial Steamer er gufutæki með sem hægt er að nota á 4 vegu:

Til þess að gufa á sér andlitið
Til að hita þvottapoka
Sem rakatæki fyrir þurr herbergi
Fyrir ilmolíur

Tækið er einfaldlega fyllt með vatni og stillt á þá styllingu sem þið viljið hverju sinni. Ólíkt öðrum gufutækjum þá gefur StylPro fíngerðari gufu sem gefur meiri raka en hefðbundin andlits gufutæki.

StylPro – Toastie Tummy

Þunnt, þráðlaust og handhægt , Toastie Tummy Period Cramp Soother getur farið með þér hvert sem er, hvenær sem þú þarft tafarlausan létti frá sársaukafullum krömpum og óþægindum. Hægt er að stilla belti tækisins þannig að það passi á allan líkama og situr þægilega á maga, mjaðmagrind eða mjóbaki.

StylPro – Smooth Finish

Smooth Finish er lítið tæki sem notar ultrasonic hátíðnivíbring og jónatækni til að hreinsa húðina og gefa henni raka.
Fullkomið fyrir góða andlitsmeðferð heima, sem veitir húðinni dýpri hreinsun og raka, bætir yfirborð og útlit húðarinnar og gefur náttúrulegan ljóma.

1. Mikilvægt er að nota tækið alltaf með vökva eða kremi. Tækið mun eingöngu virka ef húðin er rök eða blaut.
2. Æskilegt er að nota tækið í um 3-5 mínútur í hvert skipti. Ekki skal nota tækið lengur en í 10 mínútur í senn. Tækið slekkur sjálfkrafa á sér eftir 10 mínútur. Ráðlagt er að nota tækið allt að 5 sinnum í viku.
3. Haldið ykkar venjulegu húðrútínu. Ráðlagt er að nota andlitsvatn (toner) eftir hreinsun.
4. Þrífið og sótthreinsið tækið eftir notkun.

StylPro – Hot Lash Heated Eye Lash Curler

Fáðu partý augnhár á örskotsstundu!

STYLPRO Heated Eyelash Curler notar mildan hita til að bretta augnhárin varlega á nokkrum sekúndum! STYLPRO Hot Lash er einfalt, öruggt og auðvelt í notkun, hitar upp í hið fullkomna hitastig til að bretta augnhárin varlega og gefur þér fyllingu og augnhár sem haldast sveigð lengur.
Síðan skaltu einfaldlega nota uppáhaldsmaskarann þinn til að fullkomna útlitið!

StylPro – Facial Ice Globes

STYLPRO Ice Globes er sett af 2 andlitsnuddrúllum fyrir andlitsmeðferðir sem nota kælikraft til þess að lyfta yfirbragði, auka blóðrásina, draga úr augnpokum og losa um bólur og bjúg. Slakar, þéttir og lyftir húðinni.

Burstahreinsivörur

StylPro – Original

Hreinsar og þurrkar förðunarbursta á nokkrum sekúndum.

Hvenær þreifstu burstana þína síðast? Ekki viss? Þú ert ekki ein… En til að koma í veg fyrir að bakteríur þrífist í förðunarburstunum mælir fagfólk með því að þrífa förðunarbursta minnst einu sinni í viku.

 

StylePro er byltingarkennt tæki búið til að vinningshafa The Apprentice í Bretlandi Tom Pellereau. Tækið notar snúningstækni sem hreinsar og þurrkar burstana á nokkrum sekúndum.

Burstana er hægt að nota strax eftir á og þú sleppur við að baðherbergið sé yfirtekið af burstum að þorna næsta sólarhringinn.

Það þýðir lítið að vera með fullkomna húðrútínu en farða svo húðina með óhreinum burstum 😉

StylPro – Brush Cleansing Gift Set

Hreinsaðu burstana samstundis – gjöfin sem heldur áfram að gefa!

STYLPRO förðunarburstahreinsigjafasettið kemur ekki bara með fallegu bleiku og hvítu STYLPRO tæki, heldur einnig 250ml flösku af Vegan Makeup Brush Cleanser og STYLPRO skál með bleikum hálsi. Þetta gjafasett er fullkomið fyrir alla sem kunna að meta lausnir sem spara tíma.

StylPro -Spin and Squeeze

Breytir leiknum fyrir þrif á förðunarsvömpum!

STYLPRO Squeeze Makeup Sponge Cleaner djúphreinsar svampana þína á 1 mínútu, kreistir úr þeim óhreinindin og snýr þeim svo þeir þorna samstundis.

The Squeeze notar blöndu af sérgerðum svamphreinsiefni og vatni til að hreinsa svampana þína af bakteríum, farða og óhreinindum og gera þá tilbúna til notkunar samstundis.

Notaðu STYLPRO Squeeze með STYLPRO Sponge Sparkle Vegan hreinsivökva fyrir bestan árangur, við vitum að þú munt elska það!

StylPro – StylPro Vegan Sponge Sparkle Cleanser

STYLPRO Vegan Sponge Sparkle Cleanser var hannaður til að kafa ofan í dýpstu lög svampsins þíns, skera í gegnum olíurnar og púðrið til að endurheimta svampinn þinn í fyrra horf.

Vegan vottað.
Olíu og ilmefnalaust
Inniheldur ekki alkóhól, paraben og súlfat
Endurunnið og endurvinnanleg flaska og lok

Sérfræðingar mæla með því að þú hendir svampinum þínum á 2-3 mánaða fresti, sem leiðir til þess að 300 milljónir svampa enduðu á urðunarstöðum á síðasta ári. Þess í stað mælum við með því að nota STYLPRO Vegan Sponge Sparkle, djúphreinsa svampinn þinn og nota hann lengur í stað þess að farga honum.

Stylpro – Vegan Makeup Brush Cleaner Solution

StylPro hreinsivökvinn hreinsar langvarandi förðunarvörur svo sem Estée Lauder Doublewear af farðaburstunum þínum eins og ekkert sé. Vökvinn er Vegan, laus við alkahól, paraben og sulphat en inniheldur hveitikím, vínberjafræ og argan olíu.

Þessi einstaka og djúphreinsandi formúla vinnur á þrjóskum förðunarvörum svosem förðum og varalitum ásamt því að næra og hreinsa burstana þína. Það þarf ekki mikið af vökvanum, og alls ekki blanda honum við vatn.

Kemur í 200 og 500ml

Umhverfisvænar Vörur

StylPro – Barrel with 8 Reusable Bamboo Pads

Fallegur 100% bambus hólkur með 8 náttúrulegum og margnota bambuspúðum sem koma í stað einnota bómullarpúða.

Bambusinn er unninn á sjálfbæran hátt og framleiddur undir hæstu gæðastuðlum.

Bambuspúðana er hægt að nota í stað einnota bómullarpúða til þess að hreinsa húðina með vörum og nota með andlitsvatni (toner).

Eftir notkun eru þeir þvegnir í þvottavél á 30 gráðum í þvottapokanum sem fylgir. Hægt er að nota púðana allt að 1000x.

 Púðarnir eru 70% bambus og 30% bómull og eru einstaklega mjúkir og stórir.

Inniheldur:

  • 1 x Bamboo Barrel
  • 8 x makeup remover pads (8cm, 3-ply)
  • 1 x þvottapoka til að þvo bambuspúðana í.

StylPro – Bamboo Natural Gift Bag

STYLPRO Sustainable Beauty gjafasett.
Gjafasettið fyrir sjálfbæra húðumhirðu, Það besta fyrir endurnærandi upplifun! Settið inniheldur bambus andlitsklút, baðhanska, baðsvamp, 4 bambus förðunarpúða, poka fyrir þvottavélina og STYLPRO lífrænan bómullarpoka, allt unnið með sjálfbærni í huga.

StylPro – Bamboo Bath Sponge

STYLPRO baðsvampur
Að þvo húðina með vegan, náttúrulegum trefjum hjálpar til við að auka blóðrásina, gera húðina mjúka viðkomu og líta bjartari út, ásamt því að fara vel með umhverfið okkar.

StylPro – Stylpro Bamboo Face Cloths x3

Klútarnir eru gerðir úr lífrænum, náttúrulegum bambustrefjum og eru ofnæmisfríir og niðurbrjótanlegir og eru frábærir á jafnvel viðkvæmustu húðitýpuna. Samanstendur af blöndu af 70% GOTS vottuðum bambus og 30% náttúrulegri bómull.

StylPro – Reusable Bamboo Makeup Remover Pads

Náttúrulegir og margnota bambuspúðar sem koma í stað einnota bómullarpúða.

Bambusinn er unninn á sjálfbæran hátt og framleiddur undir hæstu gæðastuðlum.

Bambuspúðana er hægt að nota í stað einnota bómullarpúða til þess að hreinsa húðina með vörum, nota með andlitsvatni (toner).

Eftir notkun eru þeir þvegnir í þvottavél á 30 gráðum í þvottapokanum sem fylgir. Hægt er að nota púðana allt að 1000x.

16 saman í pakkar. Púðarnir eru 70% bambus og 30% bómull og eru einstaklega mjúkir og stórir.

StylPro – Bath Wash Mitt

Stylpro- Baðhanski

Baðhanskan má nota fyrir líkama og andlit og hentar vel bæði í baðið og sturtuna. Þvær burt óhreinindi, fjarlægir dauðar húðfrumur og heldur húðinni ferskri.

Lífrænu, náttúrulegu vegan trefjarnar djúphreinsa húðina um leið og þær auka blóðrásina, og gera húðina heilbrigða og ljómandi  og svo er hann umhverfisvænn.

Baðhanskinn er úr 95% lífrænum bómull og 5% Hemp.

 

 

Naglavörur

StylPro – Stylfile Nail File

STYLFILE 2 er bogadregin naglaþjöll sem er hönnuð til að fylgja lögun og sveigju náttúrulegu naglanna þinna. Þessi bogadregna þjöl gerir það auðvelt að ná frábærri áferð, sama hvort þú ert að nota hægri eða vinstri hönd.

Sölustaðir

Beautybar
Hárgreiðslustofa og verslun

www.beautbar.is

Kringlan
103 Reykjavík
Ísland

Beautybox
Snyrtivöru verslun og netverslun

www.beautybox.is

Síðumúli 22
108 Reykjavík
Ísland

Heima Dekur
Verslun og ráðgjöf

www.heimadecor.is

Hilmisgata 4
900 Vestmannaeyjar
Ísland

Heimkaup
Netverslun

www.heimkaup.is

 

Siglufjarðar Apótek
Apótek og vefverslun

sigloapotek.is

Siglufjarðar Apótek
Aðalgötu 34
580 Siglufjörður
Ísland